價格:免費
更新日期:2016-09-07
檔案大小:20M
目前版本:3.1
版本需求:Android 2.3 以上版本
官方網站:http://www.7minutemath.com
Email:training@7minutemath.com
Ath: Þetta forrit er hluti af áskriftarnámskeiði Betra náms, sjá www.reiknumhradar.betranam.is
Skráning er á heimasíðunni. Við kaup á áskrift færðu notendaupplýsingar sendar í tölvupósti.
Aðgangurinn gengur að vefsvæði námskeiðsins og með honum fylgir þetta app.
Á þitt barn erfitt með margföldun? Er reiknað hægt og á fingrum?
Reiknum hraðar er þaulreynt þjálfunarnámskeið sem hjálpar nemendum að styrkja grunn stærðfræðinnar:
*Samlagningu
*Frádrátt
*Margföldun
*Deilingu
Markmið námskeiðsins er að styrkja talnameðhöndlun sem annars gæti valdið miklum vandræðum í stærðfræði á mið- og unglingastigi.
Sérstaða:
*Ekkert að lesa (hentar því lesblindum nemendum )
*Ekkert að skrifa
*Enginn innsláttur
*100% sjónrænt (notast er við spil)
*30+ borð (hvert og eitt þjálfar afmarkaðan þátt)
Fyrir hverja:
*Aldur skiptir ekki máli
*Þó er miðað við nemendur í 3. bekk og ofar
*Námskeiðið hentar þeim sem eru að læra margföldun og deilingu
*Ekki síður þeim sem eru eldri og eiga við örðugleika að etja (slakur hugarreikningur og talnameðhöndlun)
Æfingaskipulag
*Mælt er með stuttum, daglegum æfingum (2-3 umferðir á dag, <5 mínútur)
Upplýsingar og skráning: www.reiknumhradar.betranam.is